|
Bilanaráð Símabæjar - Upphafsreitur Ef þú ert með þráðlaust símtæki eða farsíma sem hegðar sér illa skaltu alltaf byrja á að endurræsa tækið með því að taka rafhlöðuna úr tækinu í stutta stund. Ef þú ert með þráðlausan síma þá skaltu líka taka taka móðurstöðina/hleðslustöðina úr sambandi við innstungu. Símtæki eru ekkert annað tölvur en hugbúnaðarkvillar geta gert vart við sig með hinum ólíklegasta hætti og kallað á óþarfa verkstæðisskoðun þegar einföld endurræsing leysir vandamálið. Það getur líka tengst hugbúnaðarvandamáli þegar síminn klárar nýja rafhlöðu en slíka kvilla verður að lagfæra á verkstæði. Þegar farsíminn blotnar Raki er helsti óvinur farsímans en öllu skiptir að bregðast rétt við og fjarlægja rafhlöðuna strax úr símanum til að hindra skemmdir af völdum rafspennu. Hér er að finna afar nákvæmar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að reyna að laga blauta síma. Reynsla okkar í Símabæ er sú að tilviljun ráði ríkjum í þessum efnum. Einn sími fer óskaddaður í gegnum þvottavél á meðan samskonar tæki eyðileggst í úlpuvasa einn rakann veðurdag. Við heyrum oft af fólki sem kemur tækjum í gang eftir dvöl á ofni en síðar hættir það að virka vegna oxunar því það var ekki þrifið. Gæði símtækja Símar eru "slarkvara" með 18 mán. meðalendingu og 120.000 seld stykki á ári. Sumir símar eru betri en aðrir og persónulega finnst mér þægilegast að selja Nokia því gæðin eru jöfn og maður veit hvað maður er að fá. Sony Ericsson er með fjörugri hönnunardeild og mörg eðalmódel en leiðindi annað slagið sem vekja upp spurningar um heilindi merkisins. Samsung er ekki búinn að vera lengi í skipulagðri sölu hérlendis og hefur þó unnið sér inn sterkan sess í öllum aldurshópum. Virkilega sniðug hönnunardeild hefur fleytt þeim langt, gæðin eru jöfn og mörg módel fást á íslensku. Motorola er alveg furðulegur framleiðandi og lengi vel var ég skeptískur á gæðin en þeir eru merkilega sterkir og duglegir þótt það sætti sig ekki allir við valmyndina sem er nokkuð frábrugðin evrópsku símunum. Þjónustuaðilar GSM símtækja og þráðlausra síma Tvö verkstæði sinna ábygðarþjónustu fyrir um 300.000 farsíma hérlendis. Eftirfarandi er listi yfir merkin sem þeir þjónusta og staðsetningu. Nokia, Qtec, Sonim og HTC símtæki auk Motorola og Tetra talstöðva. Hátækni þjónustumiðstöð Vatnagarðar 20 - (100 mtr. frá Honda umboðinu) Sími 522-3010 Sony-Ericsson, Samsung, Motorola og Doro símtæki auk Panasonic ábyrgðarþjónustu við eigin innflutning. Tæknivörur ehf Skútuvogi 12c Sími 550-6877 Næsta hús hægra megin við Húsasmiðjuna/Blómaval Iphone viðgerðarþjónusta Apple á íslandi hafnar iPhone viðgerðum en ég ætla hér að vísa á útsjónarsaman einstakling sem hefur tekið að sér fjölmörg viðvik og aðstoðað við aflæsingar, skjáskipti o.þh. Sparaðu og gerðu góð kaup í GSM varahlutum Það er auðvelt að taka flesta farsíma síma sundur og fyrir vikið blómstrar varahlutamarkaðurinn vel og flestir geta skipt um móðurborð, spennuinngang, hátalara, míkrófón eða einstök boddýstykki. Símabær selur algenga varahluti og sérpantar líka ef þess er óskað. Þú getur líka mætt með gamla símann þinn, eða gömlu símana og prúttað þeim á okkur í skiptum fyrir fínan afslátt af einhverju dóti. Nokia símarnir eru einfaldlega lang skemmtilegustu dótasímarnir því það er svo auðvelt fyrir flesta að skrúfa þá í sundur með 0.6 torx. Sony Ericsson símarnir eru margir í stífum smellum og það borgar sig ekki að reyna að opna þá án leiðbeininga. Samsunginn finnst mér hundleiðinlegt að rífa og ég reyni ekki við Motorola V-3 sem þarf virkilegt dundur. Góðu fréttirnar fyri dótakallana eru þær að það er afar auðvelt að finna allar leiðbeiningar á netinu og stundum í vídeóformi. Hér eru t.d. vídeóleiðbeiningar af því þegar Nokia N95 er tekinn í sundur. Hér er fín leiðbeiningarsíða fyrir þá sem vilja rífa GSM símann sinn í sundur og skipta sjálfir um varahluti. Hafið hugfast að síður af þessu tagi skipta hundruðum og þær eru misjafnlega nákvæmar. Google á svarið í flestum tilfellum og það er fínt að nota strengi á borð við eftirfarandi: "Nokia (týpunúmer) disassembly" Viðgerðarþjónusta Símabæjar Við rekum ekki formlegt verkstæði heldur símapartasölu með nýjum eða notuðum GSM pörtum. Við bjóðum ísetningarþjónustu á flestum símapörtum á meðan beðið er. Endurnýtingarstefna Símabær er umhverfisvænt fyrirtæki með þeim hætti flokka og skila öllu rusli og við söfnum líka ónýtum farsímum, nýtum varahlutina og seljum móðurborðin úr landi til frekari endurnýtingar. Læst símtæki og ráð til að opna þau Er hægt að opna læst símtæki og hver gerir það. Umboðsmenn með forritunarbúnað fyrir GSM síma hafna að eiga við læsingar og benda á að þeim sé það óheimilt. Vodafone hefur opnað síma í einhverjum mæli fyrir viðskiptavini sína. Get ég aflæst símtæki sjálf(ur) Já en það getur tekið dálítinn tíma að finna aðferðina því hvert tæki hefur sína aðferð eða sinn opnunarkóða. Við höfum einfaldlega ekki treyst okkur til að bjóða þjónustuna í Símabæ því klukkutímarnir geta einfaldlega hrannast upp og niðurstaðan er alltaf óviss í svona "sjóræningjastarfsemi" þá bendum við líka á að við erum háðir kauplögum gagnvart tjóni á t.d. hugbúnaði í aflæsingaferli og svona starfsemi á því ekki heima innan þess þjónusturamma sem við vinnum eftir. Hvaða búnað þarf til að opna GSM síma Nokia síma er í mörgum tilfellum hægt að opna með reiknivél sem hægt er að hlaða niður af netinu. Athugið að reiknivélar eru afar mismunandi og að venju getur verið munur á milli þess sem fæst ókeypis eða ekki. Til að fá opnunarkóða þarf að slá imei númer símtækisins inn í reiknivelina en það er 15 stafa tala sem er yfirleitt að finna undir rafhlöðu Nokia síma. Ef talan er ógreinileg er hægt að slá inn *#06# og kemur þá imei númer tækisins á skjáinn. Þegar reiknivél er notuð þarf einnig að vita á hvaða símafyrirtæki hann er læstur en það liggur ekki alltaf fyrir og sést ekki á tækinu eða í hugbúnaði. Hér er dæmi um fyrirtæki með online reiknivél fyrir Nokia síma. Samsung síma þarf yfirleitt að opna með tölvukapli og hugbúnaði en sumir opnast þegar þeir eru ræstir með litlu tengistykki sem fer í tölvutengi símans. Hér er dæmi um aðila sem selur opnunarkóða fyrir mjög mörg Samsung módel og hér er svo annar með ókeypis þjónustu fyrir allmargar tegundir en hvergi þó tæmandi. Motorola bjóða sjálfir aflæsingaþjónustu á eigin síðu og þar getur sá sem kaupir hugbúnaðinn t.d. flassað símann eða straujað eins og það kallast á tölvumáli. Um leið er maður því kominn með sitt eigið hugbúnaðarverkstæði fyrir símtækið og greiðan aðgang að hugsanlegum uppfærslum. Sony Ericsson kóða auk Blacberry o.fl. er hægt að nálgast t.d. hérna en í þessari vinnu við að opna gildir aðeins ein regla. Farðu á t.d. Google og sláðu inn heiti og týpunúmer símans og bættu við unlock. Svo gildir bara að vera þolinmóður og reyna að finna hagstæðustu leiðina því fjölmargar lausnir eru í boði fyrir hvert símtæki. Nenni maður ekki svona brasi þá gildir bara að kalla til næsta tækniglaða ungling eða koma með símann til okkar og kanna varahlutaþörf. Gylfi Gylfason gylfi@simabaer.is
|