Er landsins mesta úrval af aukahlutum. Þú finnur allt fyrir gamla símann !
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 10 til 18, Laugardaga frá 11 til 15
 
Vel valdir símar og langódýrustu auka og varahlutirnir  

mynd af versluninni

Símabær er persónuleg sérverslun sem byggir á langri vöruþekkingu og sértæku vöruúrvali. Símabær var fyrsta verslunin sem hóf að bjóða alla GSM síma hlaðna og tilbúna og við bjóðum landsins mesta aukahlutaúrval samhliða sölu á almennum símabúnaði.

GSM endurvinnsla Símabæjar
Við rekum ekki formlegt verkstæði heldur símapartasölu með nýjum eða notuðum GSM pörtum. Við bjóðum ísetningarþjónustu á flestum símapörtum á meðan beðið er og endurvinnum gamla síma.  Við tökum gamla síma uppí nýja eftir atvikum og seljum notaða en nothæfa GSM síma frá kr. 1000.-

Umhverfis og gjaldeyrisvænn rekstur
Símabær er umhverfisvænt fyrirtæki með þeim hætti flokka og skila öllu rusli og við söfnum líka ónýtum farsímum, nýtum varahlutina og seljum móðurborðin úr landi til frekari endurnýtingar. 
 Símabær opnaði verslun á Ebay í desember til að selja óseljanlegan lager sem beið urðunar en viðtökurnar hafa verið svo góðar að við hyggjums gera verslunina að gjaldeyrislega sjálfbæru fyrirtæki með eigin útflutningstekjum. Íslenskar vörur verða seldar á Ebay til viðbótar við gamlan aukahlutalager og þannig tökum við virkan þátt í endurbyggingu íslands.

Verðlagning 
Við erum þekktir fyrir sanngirni í verðum og skiptum í flestum tilfellum um algenga varahluti á meðan kúnninn bíður.  Við rukkum ekkert fyrir skyndimat og algeng varahlutaskipti kosta kr. 500-1000.-

Við sérpöntum sjaldgæfa varahluti og seljum notaða varahluti á afar sanngjörnu verði. Fyrirspurnir vegna sérpantana má senda á simabaer@simabaer.is

Símabær er verslun sem tekur mið af þörfum viðskiptavina hverju sinni og við reynir að leysa öll mál af lipurð.

Framkvæmdastjóri er Gylfi Gylfason.

 

Flutningskostnaður og greiðslur vegna netpantana:
Vinsamlegaast framkvæmið ekki millifærslur fyrir pöntunum fyrr en staðfesting hafi borst á tiltekt vöru.  Athugið að viðskiptavinir geta stórlækkað flutningskostnað á t.d. rafhlöðum og smávörum með því að fá þær sendar í umslagi og greiða burðargjaldið samhliða vörunum.  Kaupendur eru ábyrgir fyrir kostnaði á ósóttum póstkröfum.

Símabær ehf
420708-0680
Þönglabakka 1
Vsk. nr. 98482
Banki 150-26-518



Afritun efnis af vefnum er óheimil án leyfis. Vörulýsingar aðrar en hráar eiginleikalýsingar framleiðenda eru varðar höfundarrétti og háðar samþykki til notkunar í heild sinni eða að hluta til. © Símabær ehf


 
Símabær ehf | Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) | 109 Reykjavík | Sími 587-4900 | simabaer@simabaer.is
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun